blogg er klárlega ofmetið... ég blogga ekki nógu oft.... sem er mjög jákvætt...
Hélt partý um helgina. Löggan kom
þetta kalla ég árangur.
Svo fórum við í bæjinn og Ævar "spiderman og Sokkanauðgi" Knutsen missti sig erlítið og hendi stól í einhvern náunga á milli þess sem hann hoppaði á borðum og gerðist áleitlegur við kvennpening akureyrabæjar... Palla homma tókst að sökka og ég var úti þegar eina góða lagið kom... Freestyler með Boomfunk MC eða eitthvað í þá áttina.
Það vantar neðsta strenginn í gítarinn minn og þar af leiðanid er leiðinlegt að spila á hann. Ég geri það nú samt alveg nágrönnunum til mikillar gleði. Sérstakir þessir "nágrannar" mínir. Konan sem býr fyrir ofan mig heyrði ekki púst í okkur, (þrátt fyrir mikil læti og söng) en kvennmaður sem býr á 4 hæð gat ekki sofið fyrir öskrunum í okkur. Mennirnir eru víst jafn misjafnir og þeir eru margir 
Jóla"fríið" mitt hefst þann 7 des. þrátt fyrir það eru litlu jól Greifans þann 26. Sem er nokkuð jákvætt því ég er í prófi þann dag og get því hrista skankana mína við hressandi jólatónlist.
Held að það sé ekkert meira í bili... nema kannski að ég hvet fólk til að skreyta EKKI hjá sér fyrr en í fyrsta lagi 24 nóv. Meira en mánuður fyrir jól er soldið mikið, ef að jólaskraut fer upp 13.nóv og niður 13.jan þá er það búið að hanga uppi í 2 mánuði og það er 1/6 af árinu. Jólaskraut á ekki að hanga uppi 17% á árinu. Það hreinlega er of mikið og er að skemma jólaskapið hjá okkur hinum.
Annars, keep up the good work
við sjáumst þegar við sjáumst
Andrés